Þunglyndi & kvíði

 

Geðraskanir eru algengar í krabbameinssjúklingum ekki síður en í öðrum hópum þjóðfélagsins.  Rannsóknir sýna að um helmingur krabbameinssjúklinga þjáist af þunglyndi og/eða kvíða einhverju sinni á sjúkdómsferli sínum.

 

Einkenni þunglyndis eru mörg. Þau helstu eru leiði, sektartilfinning, einbeitingarskortur, lystarleysi, minnkuð kynlöngun, þreyta og svefntruflanir.

 

Einkenni kvíða eru yfirleitt áhyggjur, órói og svefntruflanir.  Önnur algeng einkenni eru mæði, brjóstverkir, hjartsláttur, svimi, ógleði, niðurgangur, kviðverkir og hægðatregða. Oft fara kvíði og þunglyndi saman.

 

Á undanförnum árum hafa orðið miklar framfarir í lyfjameðferð kvíða og þunglyndis.  Nýju lyfin eru mjög árangursrík, hafa fáir aukaverkanir og það er mjög þakklátt læknisverk að hjálpa fólki sem fær þessa sjúkdóma.  Aðalókostur meðferðarinnar er sá að það tekur yfirleitt 2-3 vikur fyrir sum þessara lyfja að hafa tilætluð áhrif.  Ýmis kvíðastillandi lyf verka þó miklu fyrr, og sjúklingum líður mun betur fáum klukkustundum eftir að meðferð er hafin.