Mjúkvefja-sarkmein

 

Mjúkvefja-sarkmein er samheiti yfir fjölda æxla (yfir 30 tegundir) sem eru upprunnin frá hinum ýmsu mjúkvefjum (bandvefjum, s.s. fituvef, vöðvavef, æðavef, o.s.frv.).  Um 7,800 ný tilfelli eru greind í Bandaríkjunum árlega.

 

Faraldsfræði:

 

Tíðni eykst með auknum aldri.  Um fimmtungur tilfella er í fólki undir fertugu. Kynjahlutfall er svotil jafnt.

 

Áhættuþættir:

 

Lítið er vitað um tilurð þessara æxla.  Þó er líklegt að geislun og fyrri lyfjameðferð komi hér við sögu. Einnig eru tengsl við ýmis efnasambönd notuð í iðnaði.

 

Einkenni:

 

Algengast er að sjúklingur verið sjálfur var við fyriferð. Helmingur þessara æxla er í útlimum.  Þriðjungur þeirra veldur verkjum.

 

Meinafræði:

 

Eins og fyrr segir eru æxlin ættuð frá rúmlega 30 mismunandi bandvefstegundum.  Algengust eru æxli frá vöðva- og fituvef.

 

Stigun:

 

Fjögur stig háð útbreiðslu og vefjafræðilegu útliti æxlisins.

 

Skimun & sjúkdómsgreining:

 

Ekki er skimað fyrir þessum æxlum.  Sjúkdómsgreiningin er fengin við smásjárskoðun á vefjasýni.

 

Meðferð:

 

Skurð-, geisla- og lyfjameðferð, allt eftir útbreiðslu sjúkdómsins.