Mergæxli (Myeloma)

 

Mergæxli er illkynja fjölgun eitilfruma í beinmerg.  Tæplega 14,000 tilfelli greinast árlega í Bandaríkjunum.

 

Faraldsfræði:

 

Tíðni eykst með aldri. Sjaldgæft er að fólk fái sjúkdóminn fyrir fimmtugt.

 

Áhættuþættir:

 

Áhættuþættir eru óþekktir.  Líklega koma efnasambönd, veirus og erfðir við sögu.

 

Einkenni:

 

Einkenni geta verið mjög margvísleg.  Algengt er að fyrstu einkenni séu verkir í beinum, hátt kalkmagn í blóði, blóðleysi, nýrnabilun og sýkingar.

 

Skimun:

 

Ekki er skimað fyrir þessum sjúkdómi.

 

Stigun:

 

Sjúkdómurinn er flokkaður eftir útbreiðslu og blóðgildum í 3 stig.

 

Meðferð:

 

Meðferð byggir á lyfjameðferð og geislameðferð í völdum tilfellum.  Stöku sinnum er skurðaðgerð beitt.  Ónæmismeðferð kann að vera gagnleg og nýlega hefur meðferð með æðahamlandi lyfi (thalidomide) borið árangur.  Beinmergsflutningur er ráðlagður í völdum tilfellum.