Mæði er óþægileg tilfinning sem á sér margar
orsakir. Ekki er óalgengt að
krabbameinssjúklingar leiti sér læknishjálpar á bráðamóttökum vegna mæði. Í
fyrstu beinist athygli læknisins þá gjarnan að lungunum. Algengir sjúkdómar í lungum eru lungnakrabbamein,
fleyðruvökvi, lungnabólga, berkjubólga o.s.frv. Blóðleysi er algeng ástæða mæði
í krabbameinssjúklingum.
Hjartasjúkdómur veldur oft mæði. Vitað er að geislun og lyfjameðferð
(antracyclin, traztusumab o.fl) geta skert styrk hjartavöðvans og valdið
hjartabilun. Vökvasöfnun í gollurshúsi,
fleiðru og kviðarholi eru algengar ástæður mæði í krabbameinssjúklngum. Stundum er kvíði ástæða mæði.
Það er ljóst að ástæður mæði eru margvíslegar, og
meðferð mismunandi í hverju tilviki fyrir sig.
Áríðandi er að hafa í huga að þó svo að í sumum tilvikum sé ekki hægt að
leiðrétta orsök mæðinnar má alltaf eyða þessari óþægilegu tilfinningu með
lyfjagjöf.