Lystarleysi & Þyngdartap

 

Lystarleysi og þyngdartap getur verið merki um útbreitt krabbamein.  Sum krabbamein framleiða efnasambönd sem valda lystarleysi og auka bruna líkamans.  Slíkt ástand leyðir fyrr eða síðar til að gengið er á varaforðann, fitu- og vöðvavef og sjúklingar fara að tapa þyngd.  Þetta ástand leiðir til þreytu og slappleika og úr verður vítahringur.

 

Mikilvægt er fyrir krabbameinssjúklinga með útbreitt krabbamein eða sjúklinga í strangri lyfjameðferð að huga vel að næringarástandi sínu.  Þetta er ekki rétti tíminn til að fara í megrun !  Mjög mikilvægt er að hesthúsa öllum þeim kalóríum sem menn geta nálgast og spara hvergi við sig.  Ef valið stendur á milli rjómaíss með sultu og súkkulaðisósu og hrökkbrauðs mæli ég með fyrri kostinum.  Næringarráðgjöf getur verið mjög hjálpleg.  Mörgum hefur reynst vel að borða litlar máltíðir í senn og borða oft.

 

Í sumum tilvikum má auka matarlyst með lyfjum.  Til þessa hafa verið notaðir sykursterar og aðrir hormónar til að mynda megestrol acetate sem einnig hefur verið notað í alnæmissjúklingum með góðum árangri.

 

Rannsóknir hafa sýnt að næringjargjöf um magaslöngu eða í æð gefst ekki vel í þessum sjúklingahópi.