Lifrarkrabbamein er algengt.
Um ein milljón tilfella er greind í heiminum árlega.
Faraldsfræði:
Sjúkdómurinn er 2-7
sinnum algengari í körlum en konum. Í
austurlöndum er lifrarkrabbamein um helmingur allra greindra
illkynja sjúkdóma.
Tíðni eykst með aldri.
Áhættuþættir:
Vel þekkt er samband
lifrarbólguveiru B og C við sjúkdóminn.
Skorpulifur m.a. af völdum áfengis á hlut að
máli í um 70% tilvika. Aðrir sjaldgæfir
erfðasjúkdómar s.s. hemachromatosis, alfa-1
antitrypsin skortur koma einni við sögu.
Einkenni:
Kviðverkir, lystarleysi,
ógleði, gula og þyngdartap eru algengustu einkennin.
Skimun:
Ekki er skimað fyrir
þessum sjúdómi.
Stigun:
Lifrarkrabbamein er flokkað
í 4 stig eftir útbreiðslu.
Meðferð:
Skurð-, geisla- og
lyfjameðferð allt eftir útbreiðslu og
ástandi sjúklingsins.