Kalkkirtlarnir sitja framan á hálsinum og framleiða hormón (PTH) sem stjórnar styrk kalks í blóði. Krabbamein í þessum kirtlum er sjaldgæft.
Faraldsfræði:
Sjúkdómurinn gerir
yfirleitt vart við sig um miðja ævina og er
jafnalgengur í konum og körlum.
Áhættuþættir:
Ekki er vitað hvað veldur Kalkkirtlakrabbameini.
Ekki er að finna tengsl við geislun á háls.
Einkenni:
Flestir sjúklingar hafa
mjög hátt magn kalks í blóði.
Fyrirferð er þreifanleg á hálsi. Hæsi
kann að vera til staðar.
Skimun og sjúkdómsgreining:
Sjúkdómsgreiningin er staðfest með sýnatöku.
Ekki er skimað fyrir krabbameini í Kalkkirtlum.
Stigun, meðferð og horfur:
Meðferð er í flestum
tilvikum skurðaðgerð. Hátt kalkmagn er
meðhöndlað með lyfjum. Erfitt er að meta horfur.
Þess eru dæmi að sjúklingar hafi greinst
með sjúkdóminn að nýju 3-10 árum
eftir upphaflega skurðaðgerð.