Hospice

 

Hospice eru samtök sem einbeita sér að líknandi meðferð deyjandi sjúklinga, (þetta á við alla sjúklinga, ekki bara krabbameinssjúklinga).  Á undanförnum árum hefur orðið markverð hugarfarsbreyting í hinum vestræna heimi varðandi umönnun hins deyjandi manns.  Í stað þess að deyja á sjúkrahúsi kjósa nú æ fleiri að deyja heima umvafðir ást og hlýju fjölskyldu sinnar og heimilis.  Hospice-samtökin aðstoða við að gera þetta kleift.  Starfsmenn Hospice eru reiðubúnir til aðstoðar allan sólarhringinn ef þörf er á neyðaraðstoð.  Þetta kemur í veg fyrir að sjúklingurinn þurfi að leita sér aðstoðar á bráðamóttöku með öllu því umstangi sem því fylgir.  Einnig koma Hospice-starfsmenn í heimsóknir með reglulegu millibili, stundum daglega, stundum vikulega, -allt eftir þörfum hvers og eins.  Áhersla þeirra er líkn og aðstoð í tengslum við líkamlegar, andlegar, félagslegar og trúarlegar þarfir hvers og eins.  Í samvinnu við vini og fjölskyldu sjúklingsins aðstoða Hospice starfsmenn við umönnun og líkn hins deyjandi sjúklings síðustu mánuði lífs hans.  Mikilvægt er að hlúa vel að þessum óumflýjanlega kafla í lífi okkar allra, í þágu hins deyjandi og þeirra sem eftir lifa.