Gallvegakrabbamein

 

Gallvegakrabbamein flokkast í gallblöðrukrabbamein og gallgangakrabbamein.  Þau eru óalgeng. 

 

Faraldsfræði:

 

Hlutfall þessara sjúkdóma er hærra í konum en körlum, - 2,7:1.

 

Áhættuþættir:

 

Gallsteinar auka hættu á gallblöðrukrabbameini.  Bólgusjúkdómar í ristli (ulcerative colitis) eykur hættu á gallgangakrabbameini 10-20 falt.

 

Einkenni:

 

Því miður valda þessir sjúkdómar einkennum yfirleitt seint.  Helstu einkenni eru kviðverkur, lystarleysi, gula, þyngdartap, ógleði og fituóþol.

 

Meinafræði:

 

Aðallega kirtilkrabbamein. Flöguþekjukrabbamein mun óalgengara.

 

Stig:

 

Báðir sjúkdómar flokkaðir í 4 stig eftir útbreiðslu.

 

Meðferð:

 

Skurð-, geisla- og lyfjameðferð allt eftir útbreiðslu og ástandi sjúklingsins.