Krabbamein í endaþarmi er algengara í konum en
körlum. Yfir 80% tilfella verða í
einstaklingum yfir sextugu.
Einkenni:
Blæðing frá endaþarmi, verkur og
þrýstingstilfinning eru algengar kvartanir.
Áhættuþættir:
Endaþarmsmök eru sterkur áhættuþáttur. Sýking af HPV-veiru a líklega hlut að máli.
Meinafræði:
Flöguþekjukrabbamein er algengasta
vefjagerðin. Sjaldgæfara er að sjá
smáfrumuæxli, sortuæxli og eitlakrabbamein.
Stigun:
Sjúkdómurinn er flokkaður í 4 stig eftir
útbreiðslu.
Meðferð:
Meðferð byggir á skurð-, geisla- og lyfjameðferð
allt eftir útbreiðslu sjúkdómsins og ástandi sjúklingsins.