Þessi krabbamein eru gjarnan skammstöfuð NHL (non-Hodgkin´s lymphoma) og mun ég notast við þá skammstöfun í framhaldinu. Nýgengi þessa sjúkdóms virðist hafa aukist um þriðjung á undanförnum 30 árum. Um 57,000 ný tilfelli greinast árlega í Bandaríkjunum. Vafalaust á útbreiðsla Alnæmis hér hlut að máli, en ónæmisbæling er vel þekktur áhættuþáttur NHL.
Faraldsfræði:
Sumir undirflokkar sjúkdómsins eru algengari í
ungu fólki og aðrir ekki.
Áhættuþættir:
Ýmsar litningaskemmdir eru sterklega tengdar hinum
ýmsu vefjaflokkum NHL. Ýmis áreiti í umhverfinu hafa verið tengd NHL, þar á
meðal ýmis efnasambönd sem m.a. er að finna í úðabrúsum,
(2,4-D-organophosphates, chlorophenol, enzene, carbon tetrachoride o.s.frv.). Fyrrum lyfja- og geislameðferð eykur líkur á
NHL. Ýmsar veirur eru sterklega tengdar NHL. Þar á meðal eru Epstein-Barr
veira, Human T-lymphocyte veira I, Human herpesvirus 8 og Lifrarbólguveira C.
Ónæmisbæling hvort heldur af völdum sjúkdóma eða
lyfja (Alnæmi, líffæraþegar á ónæmisbælandi meðferð, aðrir langvinnir
ónæmisbælandi sjúkdómar), er sterkur ónæmisþáttur.
Sýking af magabólgubakteríunni Helicobacter
Pylorii er tengd eitlakrabbameini í maga, svokölluðu MALT-oma. Athyglisvert er að sum þessara meina hafa
batnað við útrýmingu á bakteríunni með sýklalyfjum.
Einkenni:
Hiti, nætursviti og þyngdartap eru svokölluð B-einkenni. Önnur algeng einkenni eru þreyta og þreifanlegar eitlastækkanir.
Skimun:
Ekki er mælt með skimun:
Meinafræði:
Flokkun NHL er flókin og reyndar síbreytileg með
tilkomu nýrra aðferða við ónæmisflokkun í kjölfar vefjaflokkunar.
Stigun:
Sjúkdómurinn er flokkaður í 4 stig eftir
útbreiðslu.
Meðferð:
Meðferð getur verið skurð-, geisla- eða
lyfjameðferð allt eftir tegund og staðsetningu meinsins. Nýlega hefur ónæmismeðferð með mótefninu
rituximab rutt sér til rúms í völdum tilfellum og gefið góða raun.