Brisið er staðsett ofarlega
í kviðarholi aftan við maga og skeifugörn.
Brisið er kirtill og framleiðir ýmis hormón.
Þeirra á meðal er insúlin sem er
nauðsynlegt hormón fyrir sykurbúskap líkamans.
Skortur á insúlíni veldur sykursýki.
Insúlín er frumum líkamans nauðsynlegt til
að geta nýtt sykur sem eldsneyti.
Briskrabbamein er fimmta algengasta
ástæða dauðsfalla af völdum krabbameins
í hinum vestræna heimi. Um 28,600 ný
tilfelli greinast í Bandaríkjunum árlega.
Faraldsfræði:
Tíðni er
svolítið hærri í körlum en konum. Tveir
þriðju hlutar sjúklinga eru eldri en 65 ára.
Áhættuþættir:
Reykingar eru vel þekktur áhættuþáttur.
Erfðir virðast að einhverju leyti koma við sögu.
Einkenni:
Lystarleysi, þyngdartap,
ógleði og kviðverkir eru algeng einkenni í upphafi.
Síðar er ekki óalgengt að beri á
bakverkjum, gulu, breytingu á hægðavenjum, lit
hægða og þvags og sykursýki.
Skimun:
Ekki er skimað fyrir sjúkdómnum.
Meinafræði:
Kirtilkrabbamein er algengast.
Stigun:
Sjúkdómurinn er
flokkaður í 4 stig eftir útbreiðslu.
Meðferð:
Skurð-, geisla- og
lyfjameðferð allt eftir útbreiðslu og
ástandi sjúklingsins.