Bein-Sarkmein

 

Bein-Sarkmein eru bandvefsæxli upprunnin frá beinum.  Þessi æxli eru afar sjaldgæf.  Líklega eru greind um 2,000 ný tilfelli árlega í Bandaríkjunum.

 

Faraldsfræði:

 

Þessi æxli eru tíðari í körlum en konum.  Flest þeirra verða í börnum og unglingum þó svo að þau geti orðið í fólki á öllum aldri og tíðni fari reyndar aftur vaxandi með auknum aldri.  Þessi æxli geta vaxið í hvaða beini líkamans sem er.  Flest þeirra eru þó í beinum útlima, þótt ekki sé óalgengt að sjá sumar tegundir bein-sarkmeina í herðablöðum og mjaðmagrindarbeinum.

 

Áhættuþættir:

 

Einhver tengsl eru við erfðir.  Þá er aukin hætta ef viðkomandi hefur fengið geislameðferð eða lyfjameðferð fyrr á ævinni.  Talið er að Paget´s sjúkdómur sé sjálfstæður áhættuþáttur.

 

Einkenni:

 

Fyrstu einkenni eru yfirleitt verkur í beini, gjarnan í kjölfar áverka.  Önnur einkenni eru háð útbreiðslu sjúkdómsins, t.d. einkenni frá lungum hafi meinið sáð sér til lungna sem er ekki óalgengt.

 

Skimun & sjúkdómsgreining:

 

Ekki er skimað fyrir þessum sjúkdómi.  Sjúkdómurinn er staðfestur með vefjasýni frá beinæxli.  Sjúkdómurinn er stigaður með sneiðmyndum, beinaskanni og röntgenmyndum.  Segulómun gefur oft mjög góða hugmynd um útbreiðslu æxlis innan viðkomandi beins.

 

Stigun:

 

Sjúkdómurinn er flokkaður í 3 stig, allt eftir útbreiðslu og útliti.

 

Meðferð & horfur:

 

Meðferð þessara meina hefur gjörbreyst á undanförnum árum.  Í stað þess að byrja á skurðaðgerð, hefur lyfjameðferð í upphafi og síðan brottnám þess æxlis sem eftir er orðið til þess að margir sjúklingar geta haldið útlimi sínum sé æxlið upprunnið þar. Yfir 70% þessara sjúklinga eru við góða heilsu að 5 árum liðnum.

 

Bein-sarkmein sá sér stundum til lungna.  Vel þekkt er að fjarlægja megi slík meinvörp með skurðaðgerð og lækna þannig sjúkdóminn.  Þetta á þó aðeins við ef meinvörpin eru fá (1-3).  Lyfjameðferð læknar um 10% sjúklinga með fjarmeinvörp.