Krabbameinslyf eru mjög áhrifarík lyf. Þau drepa frumur sem eru í skiptingu. Þetta skýrir góða verkun þeirra á
krabbameinsfrumur. Hinsvegar, fylgir sá
galli gjöf Njarðar að krabbameinslyf greina ekki á milli krabbameinsfruma og
venjulegra eðlilegra fruma líkamans.
Þau valda því einnig usla í eðlilegum líkamsvef, sérstaklega meðal
þeirra fruma sem eru í stöðugri endurnýjun og skipta sér ört. Þetta skýrir algengar aukaverkanir
krabbameinslyfja.
Allar frumur líkamans eru í eðlilegri
endurnýjun. Frumur “fæðast”, vinna sitt
verk og “deyja” eftir að hafa runnið sitt æviskeið á enda. Sem dæmi má nefna að rautt blóðkorn hefur
þann starfa að bera súrefni frá lungum til allra vefja líkamans. Þar nota frumur súrefni sem eldsneyti við
bruna. Æviskeið rauða blóðkornsins er
um 4 mánuðir. Það mun að lokum “deyja”, verða brotið niður í lifur og milta og
síðan notað til að byggja nýjar frumur.
Þær frumur líkamans sem hraðast skipta sér og
verða því mest fyrir barðinu á krabbameinslyfjum eru hárfrumur, frumur
meltingarvegarins og frumur í beinmerg.
Þetta skýrir hversvegna sjúklingar sem eru á lyfjameðferð missa
hárið. Hárið vex síðan aftur að meðferð
lokinni. Það sérkennilega er að stundum
verður breyting á hárinu. Ég hef séð
slétthærðan sjúkling fá liðað hár að lokinni meðferð og ljóshærðan dökkt hár !
Frumur þær sem klæða meltingarveginn eru í
stöðugri skiptingu og mjög næmar fyrir áhrifum krabbameinslyfja. Þetta skýrir þá ógleði sem margir kvarta
yfir meðan á meðferð stendur. Sem betur
fer er hægt að fyrirbyggja ógleði í lang-flestum sjúklingum með viðeigandi
ógleðimeðferð.
Í beinmerg eru auk rauðu blóðkornanna framleidd
hvít blóðkorn sem eru okkar heimavarnasveitir og verja okkur fyrir bakteríum og
sýkingum af öðrum toga. Einnig eru þar
framleiddar blóðflögur sem valda blóðstorku þegar það á við t.d. þegar við fáum
húðrispu eða blóðnasir.
Algengasta áhyggjuefni krabbameinslækna sem hafa
sjúklinga á krabbameinslyfjagjöf er sýkingar sem geta verið lífshættulegar og
eru reyndar algengasta dánarmein krabbameinssjúklinga. Það er því mjög mikilvægt að fylgjast vel
með hvítu blóðkornunum, því fari þau niður fyrir ákveðin mörk eykst
sýkingahætta verulega. Sérstaklega
áríðandi er að sjúklingur sem er á krabbameinslyfjagjöf og fær hita leiti til
læknis hið snarasta. Séu hvítu
blóðkornin lág þarf að hefja sýklalyfjagjöf í æð svo fljótt sem við verður
komið.
Ekki má gefa krabbameinslyf séu hvítu blóðkornin
of lág, og ekki er óvenjulegt að þurfi að fresta gjöf krabbameinslyfja um einhvern
tíma þar til blóðmergurinn hefur náð sér að fullu eftir fyrri lyfjameðferð. Í
sumum tilvikum þarf að grípa til sérstakra vaxtarþátta sem gefnir eru undir húð
og hvetja blóðmerginn til að framleiða hvít blóðkorn. Nýlega kom á markað svipaður vaxtarþáttur sem hvetur merginn til
framleiðslu á blóðflögum. Einnig er til
vaxtarþáttur sem hvetur til framleiðslu á rauðum blóðkornum. Blóðleysi (skortur á rauðum blóðkornum) er
yfirleitt meðhöndlað með blóðgjöf ef sjúklingurinn hefur einkenni s.s. þreytu
og mæði. Ekki er mælt með blóðgjöf sé
sjúklingur einkennalaus. Blóðgjöf er
líffæraflutningur og ekki með öllu hættulaus.