Krabbamein tengd Alnæmi

 

Alnæmi veldur ónæmisbælingu.  Um 40% alnæmissjúklinga fá krabbamein.  Ég mun stuttlega nefna þau algengustu.

 

Kaposi´s sarcoma (KS)

 

KS er algengasta krabbamein sem finnst í alnæmissjúklingum. Það hefur nú verið tengt sýkingu með Herpes-veiru 8.  KS er sjúkdómur sem leggst á húð og slímhúðir.  Húðmeinin eru yfirleitt bláleit, jafnvel fjólublá og lítillega upphækkuð.

 

Meðferð er mjög einstaklingsbundin og fer eftir staðsetningu meinanna og ástandi sjúklings.  Mikilvægt er að bæta ónæmiskerfið sjálft með lyfjum gegn alnæmisveirunni.  Geisla- og krabbameinslyfjameðferð er gagnleg í sumum tilvikum.  Ónæmismeðferð með interferoni á við í sumum tilvikum.  A-vitamin afleiður (9-cis retinoic acid) hafa reynst gagnlegar.  Hugsanlega kemur meðferð gegn herpesveiru-8 með veirulyfjum að gagni.

 

Eitlakrabbamein önnur en Hodgkins sjúkdómur (NHL)

 

NHL er um 60 sinnum algengara í Alnæmissjúklingum en fólki með óskert ónæmiskerfi.  Reyndar er talið að um fimmtungur allra NHL tilfella sé tilkominn vegna alnæmissmits.

 

Þessi eitilfrumukrabbamein eru flest rakin til veirusýkinga.  Epstein-Barr veira, Lifrarbólguveira C og fleiri eiga hlut að máli.

 

Einkenni eru háð staðsetningu og útbreiðslu sjúkdómsins. B-einkenni (hiti, nætursviti og þngdartap) eru áberandi.  NHL í alnæmissjúklinum hefur ríka tilhneigingu til að vaxa utan eitlastöðva, t.d. í heila, meltingarvegi og beinmerg.

 

Meðferð byggir á lyfjameðferð.  Einnig er mælt með varnandi gjöf krabbameinslyfja inní miðtaugakerfisvökva vegna þess hversu algengur miðtaugakerfissjúkdómur er í alnæmissjúlingum.  Geislameðferð á einnig við í völdum tilvikum.

 

Leghálskrabbamein

 

Leghálskrabbamein er stundum fyrsta einkenni um alnæmissjúkdóm.  Talið er að ónæmisbælingin verði til þess að human papilloma veira (HPV) sem á drjúgan þátt í myndun leghálskrabbameins nái sér vel á strik.  Allt að helmingur kvenna með alnæmi hafa leghálskrabbamein.

 

Einkenni eru allt frá því að vera engin uppí blæðingu frá fæðingarvegi, verki, hægða- og þvagtregðu.

 

Skimun er ráðlögð í konum með alnæmi á 6 mánaða fresti.

 

Flest þessara meina eru af flöguþekjuuppruna.

 

Meðferð byggir á skurð-, geisla- og lyfjameðferð, allt eftir útbreiðslu sjúkdómsins og ástandi sjúklingsins.

 

Endaþarmskrabbamein

 

Þessi tegund krabbameins er einnig rakin til sýkingar af HPV-veiru eins og leghálskrabbameinið.  Aðalsmitleiðin er endaþarmsmök.

 

Helstu einkenni eru verkir, blæðing og hægðatregða.

 

Flest þessara meina eru af flöguþekjuuppruna.

 

Meðferð byggir á skurð-, geisla- og lyfjameðferð, allt eftir ástandi sjúklings og útbreiðslu sjúkdóms.